Námskeið í sex vikur
Náum fótfestu
Námskeið fyrir konur sem eru að slíta ofbeldissambandi við barnsfeður sína.
Sambandsslit eru almennt sársaukafull en geta reynst sérstaklega flókin þegar ofbeldi kemur við sögu. Námskeiðið hentar hvort sem þú ert að stíga fyrstu skrefin eða komin lengra í átt að sjálfstæði.
- Hefst
- 6. október 2026þriðjudagur
- Umfang
- Sex vikuralla þriðjudaga, kl. 17:00–19:00
- Staður
- HeilshugarSkipholti 25, 105 Reykjavík
- Verð
- 98.000 kr.kynningarverð, fullt verð 120.000 kr.
Ef einhver getur skoðað tækið þitt: rauði hnappurinn efst fer strax á aðra síðu. Þú getur líka ýtt tvisvar á Esc. Hann eyðir samt ekki vafrasögunni (history). Öruggast er að skoða þessa síðu í síma eða tölvu sem viðkomandi kemst ekki í.
Dagskrá
Sex vikur, sex þriðjudagar
Hvert skipti stendur í tvær klukkustundir, frá kl. 17:00 til 19:00.
- 6. október Nauðsynlegar aðgerðir og kynning
- 13. október Hvað er ofbeldiÞróun, birtingarmyndir og afleiðingar
- 20. október Hvernig komst ég hingað og af hverju bregst ég svona við?
- 27. október KerfinSýslumaður, barnavernd, dómstólar og lögmenn: hvernig virka þau, hverju get ég búast við og hvað ber að varast?
- 3. nóvember Hvernig dreg ég úr sársaukafullum samskiptum við barnsföður minn?
- 10. nóvember Hvernig vernda ég börnin?
Fyrirsjáanleiki í stað óvissu
Aukinn skilningur, stuðningur og aðstoð í gegnum flóknar aðstæður.
Tvær fagstéttir
Lögmaður og sálfræðingur með mikla þekkingu og reynslu af málaflokknum.
Þú ert ekki ein
Hópur kvenna í sambærilegri stöðu. Trúnaður og öruggt rými eru í forgangi.
Mörg stéttarfélög niðurgreiða námskeiðsgjöld að hluta eða öllu leyti. Athugaðu hjá þínu félagi áður en þú skráir þig.
Skráðu þigLeiðbeinendur
Hverjar við erum
Við kennum námskeiðið saman og erum báðar á staðnum allar sex vikurnar.
Sigrún Jóhannsdóttir
Meistaragráða í fjölskyldumeðferð. Sérhæfð í forsjár- og ofbeldismálum.
logvis.isLilja Sif Þorsteinsdóttir
Sérhæfð í flóknum áföllum og með mikla reynslu af vinnu með þolendum ofbeldis í nánum samböndum.
heilshugar.isSpurningar
Það sem konur spyrja okkur um
Ef spurningin þín er ekki hér máttu senda okkur hana beint.
Hvað ef ég er ekki viss um að ég búi við ofbeldi?
Þú þarft ekki að vera búin að gefa því nafn. Margar konur koma einmitt til þess að átta sig á því hvað hefur gengið á, og annað skiptið er helgað þeirri spurningu einni.
Hvað ef ég er enn í sambandinu?
Það er í lagi. Námskeiðið gerir ekki kröfu um að þú sért farin eða að þú sért búin að ákveða að fara.
Hvað ef ég á ekki börn með manninum?
Þú ert að sjálfsögðu velkomin og það er margt sem þú átt eftir að geta nýtt þér. Við erum að skoða sérstakt námskeið fyrir barnlausar konur ef eftirspurn verður næg.
Er þetta trúnaðarmál? Hver veit að ég er á námskeiðinu?
Við ræðum ekkert sem fram fer í hópnum utan hans, og þátttakendur undirrita trúnaðarsamkomulag strax í upphafi.
Færslan á greiðsluyfirlitinu þínu kemur frá sálfræðistofu eða lögmannsstofu og nefnir hvorki námskeiðið né ofbeldi.
Þarf ég að segja frá minni sögu fyrir framan hópinn?
Nei. Þú ræður alveg hversu miklu þú deilir. Sumar tala mikið, aðrar hlusta mest allan tímann. Hvort tveggja er í lagi.
Hvað ef ég kemst ekki eitt skipti?
Láttu okkur vita og við finnum út úr því með þér.
Get ég fengið námskeiðið niðurgreitt?
Mörg stéttarfélög niðurgreiða námskeiðsgjöld að hluta eða öllu leyti. Athugaðu hjá þínu félagi hvað það styrkir.
Hvað ef barnsfaðir minn kemst að þessu?
Þú átt rétt á að sækja þér fræðslu og stuðning um þína eigin stöðu, og það er ekkert við það að athuga þótt þú gerir það.
Ef þú hefur samt áhyggjur af viðbrögðum hans, segðu okkur frá því þegar þú hefur samband. Við förum yfir það með þér áður en námskeiðið byrjar.
Skráning
Skráðu þig á námskeiðið
Skráningin tekur um mínútu. Þú þarft ekki að útskýra aðstæður þínar. Það dugar að láta okkur vita að þú hafir áhuga. Við höfum samband innan þriggja virkra daga.
Fyrirspurn
Sendu okkur fyrirspurn
Sendu okkur línu ef þig vantar frekari upplýsingar eða eitthvað er óljóst. Farið er með allar fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þú þarft ekki að skrá þig til að spyrja.